Fylkir býður uppá fjölbreytta vetrardagskrá fyrir veturinn 2021/2022.
Hér á heimasíðunni finnur þú upplýsingar um æfingatíma og fleira. Skráning í stafið fer fram í gegnum Sportabler
Fylkir býður uppá fjölbreytta vetrardagskrá fyrir veturinn 2021/2022.
Hér á heimasíðunni finnur þú upplýsingar um æfingatíma og fleira. Skráning í stafið fer fram í gegnum Sportabler
Íþróttafélagið Fylkir er 54 ára í dag 28.maí 2021 en félagið var stofnað árið 1967. Fylkir ber aldurinn mjög vel og er í mjög góðu formi eins og góðu íþróttafólki sæmir. Í dag eru í kringum 1500 iðkendur sem iðka sína íþrótt hjá okkur í sex íþróttagreinum og svo mun sú sjöunda bætast við í sumar en það er körfubolti en hann er að fara af stað aftur eftir nokkurra ára hlé. Nú er sumarið komið og það styttist í sumarstarf félagsins sem hefur sjaldan verið eins fjölbreytt og skemmtilegt. Allar frekari upplýsingar um það má nálgast á heimasíðu félagsins. Það hefur alltaf verið mikill áhugi og samstaða með félaginu innan okkar hverfis og upplifum við okkur oft sem þorp úti á landi. Það hefur sýnt sig að margir gamlir íbúar árbæjarhverfis halda tryggð við félagið þó að viðkomandi búi þar ekki lengur og eru alltaf tilbúin að leggja okkur lið ef þess þarf og fyrir það erum við ævinlega þakklát. Það gerist ekki af sjálfum sér að félag eins og okkar sé jafn stórt og öflugt og raun ber vitni. Þeir frumkvöðlar sem fóru af stað fyrir rúmum fimmtíu árum og stofnuðu félagið eiga stærstan þátt í þessari sögu og svo allir þeir sjálfboðaliðar sem komið hafa að starfinu á síðustu árum. Viljum við nota tækifærið og þakka öllum þeim kærlega fyrir þeirra framlag. Að lokum óskum við öllu Fylkisfólki nær og fjær til hamingju með daginn og hlökkum til næstu ára með ykkur. Áfram Fylkir !!
Aðalfundur félagsins og deilda þess var haldinn fimmtudaginn 20.maí. Meðal dagskráliða voru skýrslur stjórna, reikningar félagsins voru kynntir og svo var kosin stjórn félagsins ásamt kosningu á stjórnum deilda. Það er mikið fagnaðarefni að stjórn körfuknattleiksdeildar var endurvakin eftir nokkurra ára hlé og mun deildin hefja barna og unglingastarf í ákveðnum flokkum núna í haust. Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem voru kosnir í stjórn.
Blakdeild
Jóhanna Jakobsdóttir
Kristbjörg Sveinbjörsdóttir
Gunnþór Matthíasson
Guðmundur Jónsson
Pálmi Sigurðsson
Ragnheiður Sjöfn Reynisdóttir
Sólveig Sól Einarsdóttir
Gunnar Gunnarsson
Fimleikadeild
Íris Reynisdóttir
Guðlaugur Karlsson
Guðrún Ósk Jakobsdóttir
Rebekka Ósk Heiðarsdóttir
Istvan Olah
Handknattleiksdeild
Lára Sigríður Lýðsdóttir
Hrönn Vilhjálmsdóttir
Hörður Harðarson
Emilía Tómasdóttir
Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir
Sigurður Magnússon
Halla Rós Eiríksdóttir
Sigurgeir Andrésson
Silja Kristjánsdóttir
Íris Jónasdóttir
Karatedeild
Pétur Ragnarsson
Arnar Jónsson
Katrín Ingunn Björnsdóttir
Elías Guðni Guðnason
Knattspyrnudeild
Kjartan Daníelsson
Arnar Þór Jónsson
Stefanía Guðjónsdóttir
Júlíus Örn Ásbjörnsson
Ragnar Páll Bjarnason
Rafíþróttadeild
Aron Ólafsson
Þórmundur Sigurbjarnarson
Stefán Atli
Axel Gíslason
Bjarni Snær Bjarnason
Eiríkur Jóhansson
Körfuknattleiksdeild
Bjarni Þórðarson
Elvar Örn Þórisson
Ásta Katrín Hannesdóttir
Arinbjörn Hauksson
Aðalstjórn Fylkis
Björn Gíslason, formaður
Helga Birna Ingimundardóttir
Atli Atlason
Kristinn Eiríksson
Jón Birgir Eiríksson
Hulda Birna Baldursdóttir
Sigurbjörg Guðnadóttir
Aðalfundur félagsins verður fimmtudaginn 20.maí í Fylkishöll kl. 19:30. Vegna samkomutakmarkana þá þurfa þau sem áhuga hafa á að sitja fundinn að senda tölvupóst með nafni, kennitölu og símanúmeri á hordur@fylkir.is fyrir kl. 12:00 fimmtudaginn 20.maí.
Dagskrá fundarins verður með hefðbundnu sniði.
Vegna hópsýkinga og fjölgunar á Covid-19 smitum í samfélaginu þá hafa stjórnvöld gripið til hertra sóttvarnaaðgerða og eru Íþróttir barna og fullorðinna, þar með taldar æfingar og keppni innan- eða utandyra óheimilar. Allir æfingar og keppni falla því niður frá og með deginum í dag í þrjár vikur.
Hópsýkingarnar eru allar af völdum breska afbrigðis kórónaveirunnar sem er mun meira smitandi en flest önnur afbrigði og veldur frekar alvarlegum veikindum. Sóttvarnalæknir leggur áherslu á að hertar aðgerðir taki nú til barna allt frá grunnskólaaldri þar sem sýnt þykir að breska afbrigðið veldur meiri einkennum hjá eldri börnum en önnur afbrigði veirunnar.
Heilbrigðisráðuneytið hefur birt nýja reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, sem mun gilda í þrjár vikur eða til 15. apríl.
Þjálfarar félagsins verða í sambandi við sína iðkendur með planið næstu þrjár vikur.
Nú er mikilvægt að við öll förum eftir tilmælum sóttvarnaryfirvalda og pössum sérstaklega upp á persónubundnar sóttvarnir. Við bindum vonir við að ef við stöndum öll saman þá komumst við fljótt í gegnum þetta og getum þá farið að æfa aftur sem fyrst.
Leikmaður meistaraflokks karla í knattspyrnu greindist með Covid 19 um helgina og eru allir sem hann var í samskiptum við síðustu daga komnir í sóttkví. Þar á meðal þeir sem tóku þátt í leik Stjörnunnar og Fylkis í Garðabænum á laugardaginn. Búið er að sótthreinsa þá aðstöðu sem meistaflokkurinn er með og verður sú aðstaða lokuð í dag mánudaginn 22.mars. Umrætt smit hefur ekki áhrif á aðra starfsemi innan félagsins. Félagið mun nú sem áður fylgja öllum þeim reglum og tilmælum sem sóttvarnaryfirvöld hafa gefið út og hvetjum við alla til að huga áfram vel að persónubundnum sóttvörnum.
Þeir Adam Elí Ómarsson, Matthías Rúnar Þórðarson og Óliver Hrafn Gunnlaugsson komu færandi hendi í vikunni og færðu knattspyrnudeild Fylkis peninga að gjöf sem þeir söfnuðu í tombólu. Þeir félagar vildu koma því á framfæri að nota ætti peninginn til að kaupa góða leikmenn til að styrkja liðið fyrir sumarið og nefndu sérstaklega Lionel Messi og Bruno Fernandes. Það er öruggt að þessir peningar munu koma sér vel í því ástandi sem nú ríkir og verða þeir notaðir til að styrkja leikmannahópinn þó að fyrrnefndir leikmenn séu líklega ekki að koma. Við viljum þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn og greinilegt að hér er um sanna félagsmenn að ræða.
Frá vinstri Adam Elí Ómarsson, Matthías Rúnar Þórðarson og Óliver Hrafn Gunnlaugsson
Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020.
Styrkurinn er 45.000 kr. fyrir hvert barn.
Áður en þú sækir um styrkinn hjá þínu sveitarfélagi þarf að kanna hvort heimilið falli undir ofangreint tekjuviðmið. Það gerir þú með því að skrá þig inn hér á Ísland.is með rafrænum skilríkjum. Athugið að sé um hjón/sambúðarfólk að ræða þurfa báðir aðilar að samþykkja að upplýsingar um tekjur séu sóttar til skattayfirvalda (RSK) svo hægt sé að staðfesta hvort heimilið falli undir tekjuviðmiðið eða ekki.
Ef þú færð svar um að þú eigir rétt á að sækja um styrk færð þú nánari upplýsingar um næstu skref. Ef þú færð svar um að þú eigir ekki rétt á styrk færð þú upplýsingar um hvert þú getur leitað ef þú ert með athugasemdir við niðurstöðuna eða fyrirspurnir.
Hægt er að sækja um styrk til og með 15. apríl 2021.
Miðað er við að íþrótta- og tómstundaiðkunin fari fram á skólaárinu 2020–2021. Athugið að hægt er að koma með kvittanir fyrir íþrótta- og tómstundastarfi sem greitt var fyrir í upphafi skólaárs eða frá hausti 2020.
Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna og fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli
sveitarfélaga til dæmis varðandi:
hvaða íþrótta- og tómstundastarf fellur undir styrkina,
hvaða gögnum beri að skila með umsókn,
afgreiðslutíma umsókna.
Fyrirspurnum um styrkina skal beina til þíns sveitarfélags.
W ramach działań rządu związanymi z COVID-19 można ubiegać się w gminach o dotacje sportowe i rekreacyjne dla dzieci urodzonych w latach 2005-2014, mieszkających w gospodarstwach domowych, w których średnie miesięczne dochody żywicieli, osób fizycznych, małżonków czy konkubentów były łącznie niższe niż 740 000 kr. w okresie marzec-lipiec 2020.
Przed wystąpieniem o dotację z gminy należy sprawdzić, czy gospodarstwo domowe
spełnia powyższe kryteria dochodowe. Najpier należy zalogować się za pomocą swojego elektronicznego identyfikatora – patrz tutaj z boku. Należy pamiętać, że w przypadku małżeństwa/konkubinatu obie strony muszą wyrazić zgodę na ujawnienie przez urząd podatkowy (RSK) informacji o dochodach w celu potwierdzenia spełnienia kryteriów dochodowych.
Jeśli otrzymasz odpowiedź, że możesz ubiegać się o dotację, otrzymasz szczegółowe informacje na temat dalszych kroków. Jeżeli otrzymasz odpowiedź, że nie kwalifikujesz się do otrzymania dotacji, zostaniesz poinformowany dokąd należy się udać jeśli posiadasz pytania
lub zastrzeżenia dotyczące uzyskanej odpowiedzi.
Wnioski o dotacje przyjmowane są do 15 kwietnia 2021.
Zakładane jest, że zajęcia sportowo-rekreacyjne będą odbywały się w roku szkolnym
2020-2021
Przydzielenie dotacji ustalane jest przez gminy. Ustalenia dotyczące dotacji mogą różnić się w
poszczególnych gminach i różnice te mogą dotyczyć, np.:
rodzaju zajęć sportowych i rekreacyjnych objętych dotacją
dodatkowych dokumentów które należy złożyć wraz z wnioskiem o dotację
czasu rozpatrywania wniosków
Wszelkie zapytania dotyczące dotacji należy kierować do swojej gminy.
W celu ustalenia, czy spełniasz kryterium dochodowe i czy przysługują Tobie dotacje, przetwarzane są następujące dane osobowe: nazwiska i numery identyfikacyjne członków
gospodarstwa domowego, miejsce zamieszkania, numer rodziny oraz informacje o
dochodach członków gospodarstwa domowego w okresie marzec-lipiec 2020 r. Po
otrzymaniu podpisanego elektronicznie upoważnienia do zbierania informacji o
dochodach, organy podatkowe udostępnią te informacje ísland.is. Twoja gmina również
będzie miała dostęp do powyższych informacji poprzez stronę Ísland.is.
Za przetwarzanie oraz przechowywanie danych osobowych w związku z ubieganiem się o dotacje sportowe i rekreacyjne odpowiada Ísland.is. Za przetwarzanie danych osobowych związanych z działaniem Ísland.is odpowiada Ministerstwo Finansów i Gospodarki, Lindargata
7, 101 Reykjavík.
Więcej informacji na temat przetwarzania danych osobowych przez rząd Islandii, okresu
przechowywania danych osobowych oraz Twoich praw można znaleźć na ich stronie
dot. polityki prywatności.
Należy pamiętać, że powyższe zagadnienia dotyczą wyłącznie Ísland.is. Składając wniosek w Twojej gminie obowiązywać będą inne zasady dotyczące przetwarzania danych osobowych,
Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur að íþróttastarfið sé komið af stað hjá öllum og keppnir séu leyfðar.
Það sem er aftur á móti ekki leyft eru áhorfendur á æfingum og keppnum.
Beinum við því til forráðamanna og stuðningsmanna og fylgja þessum reglum í einu og öllu.
Hætta er á því að ef þessum reglum verði ekki fylgt verði keppni bönnuð.