Algengar spurningar

Ef iðkandi hefur aldrei æft fimleika áður er hægt að skoða Hópar til að fá nánari upplýsingar um námskeið í boði og skráning í námskeið fer fram HÉR

Stúlkur 5-9 ára velja G hópa.
Strákar 5-9 ára velja S hópa.
Einnig bjóðum við upp á almenna hópa sem hægt er að skoða nánar undir „Hópar-Fimleikar fyrir alla“

Forskráning fyrir framhaldshópa fer fram 6 – 20. ágúst fyrir haustönn og 6-20. desember fyrir vorönn.
Skráð er í forskráning Stúlkur eða forskráning Strákar og skráning fer fram HÉR

Ef forskráningu er lokið þarf að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Hægt er að skoða hópa sem eru í boði undir „Hópar-Parkour“
Í boði eru þrír mismunandi hópar eftir aldri.
Skráning í námskeið fer fram HÉR

Boðið er upp á Ungbarnafimi fyrir 1-2 ára og Fimleikaskólann fyrir 3-5 ára.
Skráning fer fram HÉR

Þegar iðkandi er á fimmta aldursári er hægt að skrá iðkanda í grunnhóp.

Hægt er að senda póst á fimleikar@fylkir.is til að fá upplýsingar um lausa tíma og verð.

Ef tvö systkini eða fleiri eru í fimleikum hjá Fylki er veittur afsláttur.

Afsláttur reiknast sjálfkrafa inn á skráningarkerfinu.

Iðkendur 5-9 ára byrja í grunnhóp í 1 ár. Síðan er skipt iðkendum upp í hópa.

Hjá stúlkum skiptast hóparnir í framhalds-, undirbúnings- og keppnishópa.
Hjá strákum heita grunn- og framhaldshópar S-hópar.

Mikilvægt er að skipta iðkendum í hópa eftir getustigi, til þess að hver og einn iðkandi fái sem bestu mögulega þjálfun og líðan.
Erfitt getur reynst fyrir þjálfara að vera með iðkendur á mismunandi reiki.
Reynsla okkar hefur sýnt fram á að ef iðkandi finnur fyrir miklum getumun á sér og öðrum iðkendum í hópnum að það hafi slæm áhrif á líðan iðkanda.
Með þessu fyrirkomulagi gerir þetta þjálfun auðveldari og betri fyrir alla aðila.

Ef iðkendur eru að byrja í fimleikum í fyrsta sinn geta foreldrar valið sama hópinn.

Ef iðkendur í framhaldshópum vilja vera saman í hóp þá er eingöngu hægt að færa þann iðkanda sem er lengra kominn niður um hóp.