Tímabilið 2023-2024
- MB 6-7 ára65.000 kr.
- MB 8-9 ára75.000 kr.
- MB 10 ára75.000 kr.
- MB 11 ára75.000 kr.
- 7.Flokkur85.000 kr.
- 8.Flokkur85.000 kr.
- 9.Flokkur85.000 kr.
- 10.Flokkur85.000 kr.
- 11.Flokkur85.000 kr.
Reglur félagsins
Almennt
Æfingagjöld skulu greidd í upphafi tímabils.
Greiðsla æfingagjalda er forsenda fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur eða einstaklingur fer á.
Æfingagjöldin standa að mestu leyti undir rekstri flokka og deilda og er þar langstærsti kostnaðarliðurinn laun þjálfara félagsins. Þau eru greidd út mánaðarlega, m.ö.o. æfingagjöldin eru lífæð fyrir rekstur deildanna.
Skráning, greiðsla, afslættir
Skráning og greiðsla æfingagjalda er í gegnum Sportabler.
Allir iðkendur verða að vera skráðir.
Í skráningarferlinu koma allar nauðsynlegar upplýsingar fram, verð á námskeiði og hvort hægt sé að skipta greiðslum og þá í hversu margar.
Ef forráðamaður getur ekki greitt í félagagjaldakerfinu með greiðsluseðli eða kreditkorti, þá þarf að hafa samband við skrifstofu, fylkir@fylkir.is.
5% Systkina- og fjölgreinaafsláttur af öllum gjöldum, kemur inn við skráningu.
Mikilvægt að hafa samband við skrifstofu ef um fjárhagserfiðleika er að ræða og finna úrlausn sem leiðir til áframhaldandi þátttöku iðkandans.
Allar breytingar á skráningu kosta 1500 kr fyrir hverja færslu / seðil utan innheimtukostnað og dráttarvexti.
Samskipti þjálfara við iðkendur og foreldra fara fram í gegnum Sportabler.
Þar koma fram upplýsingar um æfingar, leiki/mót og annað sem tengist starfinu.
Þegar iðkandi er skráður tengist hann sjálfkrafa við dagskráviðkomandi hóps.
Vinsamlegast hafið sambandi við skrifstofu Fylkis ef upp koma vandamál, fylkir@fylkir.is.
Færslugjöld
Ofan á hvern greiðsluseðil bætist við 390 kr seðilgjald.
Ef æfingagjöldum er dreift á greiðslukort þá bætist við 2% kostnaður.
Frístundastyrkur
Hægt er að nýta frístundastyrk Reykjavíkurborgar upp í greiðslu á æfingagjöldum.
Nota skal frístundastyrkinn þegar gengið er frá æfingagjöldum í Sportabler við upphaf tímabils eða þegar iðkandi byrjar.
Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með frístundastyrk Reykjavíkurborgar.
Ekki má flytja frístundastyrk milli systkina
Íþróttafélagið Fylkir
Íþróttafélagið Fylkir
Sími 571-5600
blak / fótbolti / handbolti / körfubolti
Fylkisvegi 6, 110 Reykjavík
Blak / Fótbolti / Handbolti / körfubolti
Sími 571-5602
Fimleikar / Karate / Rafíþróttir
Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík
Fimleikar / Karate / Parkour
Sími 571-5601