Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis var endurkjörin á aðalfundi deildarinnar 10. desember. Í stjórninni eru þau Arnar Þór Jónsson, Júlíus Örn Ásbjörnsson, Ragnar Páll Bjarnason, Stefanía Guðjónsdóttir ásamt Kjartani Daníelssyni sem var kosinn formaður. Vegna samkomutakmarkana fór fundurinn fram rafrænt undir styrkri stjórn fundarstjórans Viðars Helgasonar. Fyrir utan stjórnarkjörið var flutt skýrslar stjórnar og farið yfir fjárhagsmál deildarinnar en þeirri umræðu var svo frestað fram á næsta ár þegar aðalfundur félagsins fer fram. Fjölmargir Fylkisfélagar fylgdust með fundinum við þessar sérstöku aðstæður.
Jón Vilhálmsson lést á líknardeild Landsítalans föstudaginn 13. nóvember. Úförin fer fram frá Árbæjarkirkju mánudaginn 23. nóvember kl. 13 og verður streymt af : youtu.be/JLunPCX_xik .
Foreldrar sem eru tilbúnir til að fórna tíma sínum fyrir heildina eru ekki á hverju strái. Slíkir einstaklingar eru dýrmætir fyrir félagasamtök eins og Fylki. Jón var slíkur einstaklingur, einn af þeim sem var óhræddur við að taka að sér trúnaðarstörf fyrir félagið og gerði það vel og um langt árabil. Hann var ötull stuðningsmaður félagsins og byrjaði að taka þátt í störfum foreldraráða eins og svo margir fórnfúsir foreldrar gera. Árið 2007 tók hann að sér gjaldkerastöðu BUR eða Barna og unglingaráðs knattspyrnudeildar. Eftir nokkur ár í því hlutverki, sem er ærið, tók hann að sér formennsku í ráðinu og gegndi því í þrjú ár. Sem slíkur sat hann í stjórn Knattspyrnudeildar til loka árs 2012. Störf hans fyrir félagið voru ómetanleg, hvort sem það var utanhald um einstakar fjáraflanir, innheimta æfingagjalda eða rekstraráætlanir, allt var unnið að mikilli nákvæmni og fagmennsku. Hann hafði sterkar skoðanir á hvernig best yrði haldið utanum hlutina og fékk þar ýmsu framgegnt.
Jón fékk afhent silfurmerki félagsins árið 2010 fyrir vel unnin störf.
Andlát Jóns Vilhjálmssonar kom okkur í stjórn deildarinnar í opna skjöldu. Hann var oft á vappi í kringum völlinn s.l. ár til að fylgjast með leikjum Villa og var þá spjallað í léttum dúr um heima og geima og deildina sem er okkur svo kær. Tíminn flýgur og á tímum Covid er fólk að hittast minna og því urðu samverustundir ekki fleiri.
Jóns Vilhjálmsonar verður sárt saknað af Fylki.
Elsku Rósa, Vilhjálmur, Svavar og Erna Dís og barnabörn, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur við fráfall Jóns.
Fyrir hönd Knattspyrnudeildar Fylkis
Kjartan Daníelsson, formaður


https://fylkir.felog.is/verslun



Bikarúrslit á sunnudag kl 11:30.
3fl.kvenna
WÜRTH VÖLLURINN
Fylkir – ÞÓR/KA
Yfirlýsing frá Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis
Vegna grófra ummæla Rúnars Kristinssonar þjálfara KR í viðtölum á Stöð 2 og fótbolta.net eftir leik KR og Fylkis s.l. sunnudag langar okkur að koma eftirfarandi á framfæri
Okkur var verulega brugðið þegar þjálfari KR viðhafði fordæmalausan óhróður um leikmann Fylkis, Ólaf Inga Skúlason og vændi leikmanninn og liðið allt um að stunda ítrekað svindl og svínarí í gegnum tíðina í viðtölum eftir leik liðanna. Fleiri miður falleg og einstaklega ósvífin orð voru látin falla sem verða ekki tíunduð hér en eru þjóðinni kunn og eru honum og félaginu KR til háborinnar skammar.
Rétt er að taka fram að það er partur af leiknum að vera ósammála um atvik í leikjum eða frammistöðu leikmanna og dómara og hafa á þeim sterkar skoðanir. Þau ummæli sem hér um ræðir voru hins vegar einstaklega persónulegar ærumeiðingar sem að mati okkar Fylkismanna fóru langt út fyrir þau velsæmismörk sem eðlilegt er að setja bæði til að vernda leikmenn og starfsmenn leikja. Slík mörk eru ekki síður mikilvæg til að viðhalda virðingu leiksins og sýna ábyrgð út á við af þeim sem eru sterkar fyrirmyndir margra og ekki síst barna og ungmenna.
Við hjá knattspyrnudeild Fylkis höfum haft miklar mætur á Rúnari Kristinssyni sem á einstaklega glæsilegan knattspyrnuferil að baki jafnt með félagsliðum og landsliðum þar sem hann hefur iðulega komið fram af prúðmennsku. Hefur hann sem þjálfari jafnframt iðulega komið vel fram í fjölmiðlum og verið málefnalegur, agaður og hófstilltur. Af þessum ástæðum svíður það enn meir að hann skuli viðhafa þessi bersýnilegu röngu og meiðandi ummæli um leikmann okkar og lið enda er hlustað á hann og tekið mark á honum.
Eftir stendur hins vegar að flestir þeir hlutlausu sérfræðingar sem hafa tjáð sig um umrætt atvik eru sammála um að ákvörðun dómara hafi verið rétt. Jafnframt hefur enginn tekið undir ummæli þjálfarans um óheiðarleika og svindl af hálfu umrædds leikmanns né hafa verið sett fram dæmi sem styðja þessi ummæli. Það eru hins vegar til nýleg dæmi þar sem að Rúnar hrósaði leikmanni sínum eftir að leikmaðurinn viðurkenndi að hafa „fiskað“ annan leikmann af velli með leikaraskap. Framangreind ummæli Rúnars dæma sig því sjálf. Hið rétta er eins og allir vita sem til þekkja að Ólafur Ingi Skúlason er frábær leikmaður og persónuleiki bæði innan og utan vallar sem á glæsilegan feril að baki bæði með félagsliðum og íslenskum landsliðum. Hann getur verið fastur fyrir á vellinum en hann er langt frá því að vera óheiðarlegur leikmaður eða svindlari.
Forráðamenn Fylkis hafa ávallt lagt sig fram við að eiga gott samstarf við KR og hefur það oftast gengið eftir. Stuðningsmenn þeirra eru einstakir og okkur hlakkar alltaf til komu þeirra í Árbæinn. Það er hins vegar miður að KR hefur ekki séð ástæðu til að biðjast afsökunar eða með öðrum hætti að bera klæði á vopnin. Með þessu er þetta stórveldi í íslenskri knattspyrnu að setja ný háttsemis- og samskiptaviðmið.
Við Fylkismenn höfum hins vegar ákveðið að setja þetta mál aftur fyrir okkur með þessari yfirlýsingu og munum þess í stað einbeita okkur að leiknum sjálfum og þeim fjölmörgu verkefnum sem þessir fordæmalausu tímar hafa lagt á íþróttahreyfinguna. Þannig stuðlum við best að öflugu starfi knattspyrnudeildar Fylkis bæði í meistaraflokkum karla og kvenna og í yngri flokkum þar sem við munum áfram leggja áherslu á háttvísi innan og utan vallar.
Í framangreindu ljósi hefur stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis ákveðið að senda ekki inn kæru til Aga- og úrskurðarnefdar KSÍ vegna þessara ummæla þjálfarans en láta þess í stað KSÍ það eftir að taka þetta mál til skoðunar með það fyrir augum að standa vörð um háttvísi íslenskrar knattspyrnu og setja umræðunni takmörk.
Máli þessu er hér með lokið af okkar hálfu.
Fyrir hönd Knattspyrnudeildar Fylkis
Kjartan Daníelsson