Frábærir dagar framundan 🙂

Leikur hjá strákunum á sunnudaginn. Mætum endilega snemma, FANZONE fyrir leik.

Svo eru stelpurnar á mánudaginn.

MINNUM Á MIÐASÖLU Í STUBB.

Sjáumst á vellinum.

FYLKIR ARBLJARINS BESTA

Ég elska tvennt við KR

N.k. sunnudag fáum við Íslandsmeistara KR í heimsókn. Heimaleikur við KR hefur alltaf skipað stóran sess í mínum huga. Ekki skemmir það að þeir eru ríkjandi meistarar í Pepsi Max deildinni og hefur vegnað vel fram að þessu og einnig höfum við byrjað mótið ágætlega.

Þegar góða gesti ber að garði þá er oft tínt til það besta úr búrinu og veglega veitt. Þannig verður það á sunnudag. Við munum blása til hátíðar og opna FANZONE við austurenda Fylkishallar þar sem upphitun og andlitmálun fer fram. Skátarnir verða tilbúnir með hoppukastala og candyflos og félagið mun selja ýmsan varning. Grillin verða á sínum stað og Tailenski staðurinn Rakang verður með bás. Tjörnes ætla að taka nokkur hressandi upphitunarlög og knattþrautir verða í umsjá yngri flokka þjálfara.

Margar skemmtilegar minningar má tengja þessum leikjum. Í upphafi aldarinnar gekk okkur vel með KR á heimavelli. Árið 2000 lékum við einum færri frá 28 mínútu en náðum jafntefli 1-1 en mark Fylkis skoraði Gylfi Einars. Árið 2001 unnum við KR í opnunarleik Landsbankadeildarinnar 1-0 með marki frá Steingrími heitnum Jóhannessyni. Svo var komið að leiknum örlagaríka árið 2002. 1-1 endaði sá leikur með mörkum frá Ómari Valdimarssyni og manninum sem ekki má nefna í Árbæ og KR hélt í titilvonina. Árið eftir unnum við þá 2-1 eftir að Siggi Raggi hafði komið þeim yfir snemma leiks. Mörk frá Hauki Inga og Birni Viðari tryggði okkur sigurinn. Þjálfari KR, Willum Þór Willumson ætlaði að reyna sama trikk og árinu áður að setja manninn sem ekki má nefna í Árbæ inná á lokamínútum leiksins en það tókst ekki. Árið 2004 kom yndislegur 3-1 sigur með tveimur mörkum Gústa Breiðdal og einu frá Val Fannari en Arnar Gunnlaugs kom vesturbæingum á blað. Síðan tóku við nokkur mögur ár gegn móður allra klúbba Íslandi. Síðast unnum við KR á heimavelli 2012 með mörkum frá Emil Ásmundssyni, sem nú er genginn til liðs við KR, Ingimundi Níels og Björgólfi Takefusa sem báðir hafa leikið með KR. Einu leikmennirnir sem léku þennan leik og eru enn að spila með sínum liðum eru fyrir utan Emil sem hefur haft vistaskipti og er meiddur, Ásgeir Eyþórsson sem kom inná sem varamaður og fyrir KR, Aron Bjarki Jósepsson og Atli Sigurjónsson.

En eins og segir í fyrirsögninni þá er það tvennt sem ég elska við KR. Það fyrsta er að vinna þá og annað, hversu duglegir KR ingar eru að mæta á útileiki og styðja sitt lið. Þeir eru til fyrirmyndar á þessu sviði. Þess vegna verða allir leikir við KR stórleikir í mínum huga og þannig verður það n.k. sunnudag einnig.

Um leið og við bjóðum alla KR inga velkomna í Lautarferð á Wurth völlinn viljum við minna á bílastæði við kirkjuna en aðeins 5 mínútna gangur er þaðan á völlinn. Við hvetjum líka alla áhorfendur að nýta sér STUBB appið til að kaupa miða.

Mætum tímanlega og njótum stemmingarinnar á þessum stórleik í íslenskum fótbolta.

ÁFRAM FYLKIR

Kjartan Danielsson

Formaður Knattspyrnudeildar

WÜRTH VÖLLURINN
FYLKIR – KR
OLÍS LEIKURINN
SUNNUDAG KL 17:30

Þađ er nóg ađ gera.
Næstu leikir hjà meistaraflokkum.

Mànudagur Pepsì Max karla
FH – Fylkir
Kl 19:15

Miđvikudagur Pepsì Max kvenna
Valur – Fylkir
19:15

Mætum og styđjum Fylki.

FYLKIR ÀRBÆJARINS BESTA

PEPSÍ MAX KARLA
WÜRTH LEIKURINN
FYLKIR – KA
WÜRTH VÖLLURINN
FIMMTUDAGUR kl 18:00

Það verða þrjú hólf í stúkunni og er gengið inn í öll hólf í bakenda stúku, sér inngangur í hvert hólf.
Hólf 1: Suðurendi. Stuðningsmenn Fylkis sem kaupa stakan miða í gegnum STUBB appið.
Hólf 2: Miðja. Árskortshafar Fylkis – KSÍ Kort – Fjölmiðlar
Hólf 3: Norðurendi. Stuðningsmenn KA sem kaupa stakan miða í gegnum STUBB appið.

Stuðningsmenn KA fá miða í hólf 3 og eru miðar eingöngu seldir í gegnum STUBB (öryrkjar og ellilífeyrisþegar geta keypt miða á staðnum).
Hér er hægt að sækja appið: https://stubbur.app/

Við hvetjum Árbæinga til að koma gangandi á völlinn.
Eins viljum við benda stuðningsfólki KA á bílastæði við Árbæjarkirkju, Árbæjarskóla og Rofaborg.

FYLKIR ÁRBÆJARINS BESTA

Fylkir og Nettó í samstarf.

Nýverið var gerður samstarfssamningur milli knattspyrnudeildar Fylkis og Nettó.

Nettó mun vera með auglýsingar ofl á keppnisvelli Fylkis.

Við hvetjum stuðningsfólk félagsins til að versla við Nettó, öflugt og flott fyrirtæki.

Nettó var fyrsta lágvöruverslunin til að opna netverslun á Íslandi í september 2017. Vöruúrvalið í Nettó verslunum er mikið og verðlag að fullu samkeppnishæft við aðrar lágvöruverðsverslanir.

Þú getur gert öll matarinnkaupin þín á netinu, í vefverslun Nettó á netto.is. Það eina sem þú þarft að gera er að velja vörurnar. Þú getur síðan valið um að sækja eða fá vörurnar sendar heim.

Farðu núna á netto.is, skoðaðu úrvalið og gerðu matarinnkaupin fyrir vikuna.

Pepsí Max karla
Fjölnir – Fylkir
Laugardagur kl 14:00

FYLKIR ÁRBÆJARINS BESTA

Öll dagskrá verður með eðlilegum hætti frá og með morgundeginum, þriðjudeginum 30.júní.  Námskeið og æfingar fara af stað en allt féll niður mánudaginn 29.júní þar sem upp kom Covid 19 smit hjá leikmanni meistaraflokks kvenna í knattspyrnu. Þess ber að geta að umræddur leikmaður tengist aðeins liðinu, er ekki þjálfari eða starfsmaður Fylkis.

Búið er að sótthreinsa Fylkishöllina og vallarsvæðið.

Þetta hefur ekki áhrif á leik Fylkis og Gróttu í Pepsi Max deild karla sem fer fram í kvöld kl. 19:15 á Wurth vellinum.

Svo viljum við ítreka til allra okkar félagsmanna að sýna fyllstu aðgát og varfærni og brýnum fyrir félagsmönnum að fylgja tilmælum Almannavarna um tveggja metra fjarlægð, handþvott og aðrar hreinlætisvenjur.

Áfram Fylkir

Samstarf Fylkis og Olís heldur áfram.
Í dag skrifaði knattspyrnudeild Fylkis undir áframhaldandi samstarf við Olís og erum við mjög þakklát fyrir vilja Olís til að starfa áfram með okkar góða félagi.
Við viljum hvetja Fylkisfólk til að versla við þetta góða fyrirtæki. Ef fólk vill tryggja sér betra verð á eldsneyti og fá hjá okkur afsláttarlykil þá vinsamlega verið í sambandi haffisteins@fylkir.is
Fylkir og Olís eru frábær saman.

Í dag kom upp Covid 19 smit hjá leikmanni meistaraflokks kvenna í knattspyrnu. Viðkomandi leikmaður er nú í einangrun og aðrir leikmenn og þjálfarar í sóttkví.

Félagið vinnur málin náið og í góðu samráði við Almannavarnir og KSÍ og standa líkur til þess að næstu tveimur til þremur leikjum kvennaliðs félagsins verði frestað. Mun það skýrast frekar á allra næstu dögum.

Á morgun, mánudaginn 29. júní, falla niður allar æfingar á félagssvæði Fylkis í og við Fylkishöll, þ.e. fótboltaæfingar, handboltaæfingar, knattspyrnuskólinn og tækniskólinn, á meðan verið er að sótthreinsa Fylkishöllina og vallarsvæðið. Við biðjum því alla að fylgja þeim tilmælum að svæðið sé lokað þar til annað verður tilkynnt.

Þetta hefur ekki áhrif á leik Fylkis og Gróttu í Pepsi Max deild karla sem fer fram annað kvöld kl. 19:15 á Wurth vellinum.

Engin röskun verður á öðru skipulögðu starfi fimleikadeildar, karatedeildar og rafíþróttadeildar í Fylkisseli.

Við viljum biðla til allra okkar félagsmanna að sýna fyllstu aðgát og varfærni og brýnum fyrir félagsmönnum að fylgja tilmælum Almannavarna um tveggja metra fjarlægð, handþvott og aðrar hreinlætisvenjur.