Aðalfundur knattspyrnudeildar verður rafrænn
Aðalfundur knattspyrnudeildar Fylkis verður á fimmtudaginn næsta 10.desember 2020 kl:20:00.
Dagskrá fundarins verður hefðbundin samkvæmt lögum félagsins.
Vegna þeirra samkomutakmarkana sem eru í gildi þá fer fundurinn fram rafrænt í gegnum Teams forritið.
Þeir Fylkisfélagar sem vilja fylgjast með og taka þátt í fundinum þurfa að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is fyrir kl. 13:00 fimmtudaginn 10.des. Í póstinum þarf að koma fram fullt nafn og kennitala.
Klukkan 15:00 á fimmtudaginn verður svo sent út fundarboð með hlekk á fundinn.
Allar frekari upplýsingar veitir Hörður Guðjónsson framkvæmdarstjóri Fylkis í síma 861-3317 eða í gegnum netfangið hordur@fylkir.is