Starfsmaður óskast í fullt starf
Íþróttafélagið Fylkir auglýsir eftir starfsmanni í fullt starf sem getur hafið störf 1. september 2025.
Íþróttafélagið Fylkir er hverfisfélag í Árbænum með starfsstöðvar á tveimur stöðum, við Fylkisveg og í Norðlingaholti. Innan félagsins eru starfandi 7 íþróttagreinar með nálægt 2.000 iðkendum.
Helstu verkefni:
Þrif/ræsting á húsnæði félagsins
Störf í afgreiðsla
Skipulag vakta
Aðstoð við innheimtu æfingagjalda
Önnur verkefni
Mikilvægt er að viðkomandi sé með reynslu af þrifum/ræstingum og með góð tök á íslensku. Gerð er krafa um góða hæfni í mannlegum samskiptum, góða þjónustulund og ágætis tölvukunnáttu. Einnig að viðkomandi sé stundvís og með hreint sakavottorð.
Umsóknir skulu sendar á Hörð Guðjónsson framkvæmdastjóri á netfangið hordur@fylkir.is.
Umsóknarfrestur er til 15.júlí 2025.