Vorönn 2022
U-2
Undirbúningshópur 2 er lokaður hraðferðahópur fyrir stúlkur fæddar 2015.
U-2 er í boði fyrir stúlkur sem eru tilbúnar að æfa meira og vilja leggja mikla áherslu á að keppa í náinni framtíð.
Hraðferðarhópar eru lokaðir hópar sem valið er í og gerðar eru meiri kröfur til iðkenda í þeim hópum. Ef iðkandi er valinn í þessa hópa og vill ekki þiggja plássið er hægt að fara í aðra framhaldshópa.
Tekið er stöðumat á hverri önn og metið hvort iðkendur hæfi sínum hóp eða hvort iðkandi færist í annan hóp.
U-2 er hraðferðarhópur sem:
- Stefnir á keppni í þrepum á FSÍ mótum vorönn 2024.
- Iðkendur hafa áhuga á að ná langt í sinni íþrótt
- Æfir hlutfallslega meira en aðrir framhaldshópar miðað við aldursár.
- Gerðar eru meiri kröfur til iðkenda.
Ef vinkonur/frænkur/systur vilja vera saman í hóp og önnur er í undirbúningshóp þarf sú sem er í þeim hóp að færa sig um hóp.
Kennt er eftir reglum Íslenska fimleikastigans, sjá nánar hér að neðan.
Nánari upplýsingar
Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands.
Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)
* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.
* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.
Íslenski fimleikastiginn
Íslenski fimleikastiginn eru þær æfingar og reglur sem iðkendur fara eftir í keppnum. Fimleikastiginn er gefinn út á fjögurra ára fresti. Hjá stúlkum er fimleikastiginn byggður upp á átta þrepum ætluðum til æfinga og keppni í áhaldafimleikum kvenna. Lægstu þrjú þrepin þ.e. 6. -7. – 8. þrep eru skylduæfingar ætlaðar til kennslu iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni. Eftirfarandi þrep eru eingöngu ætluð til keppni á innanfélags- og vinamótum. Efstu fimm þrepin, þ.e. 5. – 1. þrep eru ætluð til keppni á mótum FSÍ.
Auk þess er kennt sérstakt Fylkisþrep fyrir yngstu iðkendur Fylkis sem keppt er í á Innanfélagsmótum Fylkis.
Ath. U-2 er lokaður hópur og því ekki hægt að skrá beint í U-2. Greiðsla fer fram í gegnum Sportabler.
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is