Vorönn 2022
FFA stúlkur
ATH. Nú fara allar skráningar í gegnum skrifstofu fimleikar@fylkir.is
FFA stúlkur er hópur sem er tilvalinn fyrir þær sem byrja seint að æfa fimleika og ekki er lögð áhersla á keppni. Eingöngu er lagt áherslu á hreyfingu, kynnast fimleikum og fyrst og fremst hafa gaman.
Markmið námskeiðsins er að kynna fyrstu grunnæfingar fimleika, æfa samhæfingu, jafnvægi, liðleika og prufa ýmis áhöld, bæði úr áhalda- og hópfimleikum.
- FFA fyrir stúlkur fæddar 2008-2012 (2×1,5 klst á viku)
Nánari upplýsingar
Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands.
Námskeið hefst skv. stundaskrá 10. janúar og lýkur 4. júní
Ath. Hámark 12 iðkendur í hverjum hóp ef þjálfari er einn og 18 iðkendur ef þjálfarar eru tveir.
Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)
* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.
* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler.
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is