Vorönn 2024

Ungbarnafimi 1-2 ára

Ungbarnafimi er fyrir börn sem eru 1-2 ára

Námskeið hefjast laugardaginn 13. janúar og er í 12 vikur

Börnin mæta með foreldrum sínum og foreldrar aðstoða börnin. Byrjað er á upphitun og síðan er farið í gegnum þrautabrautir og ýmsar æfingar sem eflir hreyfiþroska barnanna.
Markmið námskeiðsins er að æfa samhæfingu, jafnvægi, fín- og grófhreyfingar og fá útrás fyrir hreyfiþörfinni með æfingum, leik og söng í flottu og öruggu umhverfi.

Kennt er 1x í viku á laugardögum og er hver tími 45 mínútur.
Ath. Hámark 30 iðkendur í hverjum hóp.

Eftirfarandi hópar í boði:

  • Hópur 1: 2022 (1 árs +) 
  • Hópur 2: 2021-2022 (1-2 ára)
  • Hópur 3: 2021 (2 ára +)

Nánari upplýsingar

Verð fyrir vorönn er 28.000 kr 

Skilmáli æfingagjalda.

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

Þjálfari er Zsuzsanna Oláhné Szentimrey

* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi næst ekki.

Systkinaafsláttur er 10% af öðru gjaldinu.

Æfingatími

  • Hópur 1

    kl. 08:30-9:15

  • Hópur 2

    kl. 09:25-10:10

  • Hópur 3

    kl. 10:20-11:05

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler. 

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Zsuzsanna