Vorönn 2024

U-1

Undirbúningshópur 1 er lokaður hraðferðahópur fyrir stúlkur fæddar 2016-2017

U-1 er í boði fyrir stúlkur sem eru tilbúnar að æfa meira og vilja leggja mikla áherslu á að keppa í náinni framtíð.
Hraðferðarhópar eru lokaðir hópar sem valið er í og gerðar eru meiri kröfur til iðkenda í þeim hópum. Ef iðkandi er valinn í þessa hópa og vill ekki þiggja plássið er hægt að fara í aðra framhaldshópa.

Tekið er stöðumat á hverri önn og metið hvort iðkendur hæfi sínum hóp eða hvort iðkandi færist í annan hóp.

U-1 er hraðferðarhópur sem:

  • Stefnir á keppni í þrepum á FSÍ mótum vorönn 2025-2026.
  • Iðkendur hafa áhuga á að ná langt í sinni íþrótt
  • Æfir hlutfallslega meira en aðrir framhaldshópar miðað við aldursár.
  • Gerðar eru meiri kröfur til iðkenda.

Ef vinkonur/frænkur/systur vilja vera saman í hóp og önnur er í undirbúningshóp þarf sú sem er í þeim hóp að færa sig um hóp.

Kennt er eftir reglum Íslenska fimleikastigans, sjá nánar hér að neðan.

Nánari upplýsingar

Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands. 

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.

Íslenski fimleikastiginn

Íslenski fimleikastiginn eru þær æfingar og reglur sem iðkendur fara eftir í keppnum. Fimleikastiginn er gefinn út á fjögurra ára fresti. Hjá stúlkum er fimleikastiginn byggður upp á átta þrepum ætluðum til æfinga og keppni í áhaldafimleikum kvenna. Lægstu þrjú þrepin þ.e. 6. -7. – 8. þrep eru skylduæfingar ætlaðar til kennslu iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni. Eftirfarandi þrep eru eingöngu ætluð til keppni á innanfélags- og vinamótum. Efstu fimm þrepin, þ.e. 5. – 1. þrep eru ætluð til keppni á mótum FSÍ.

Ath. U-1 er lokaður hópur og því ekki hægt að skrá beint í U-1. Greiðsla fer fram í gegnum Sportabler. 

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Þjálfari kemur síðar