,

Fylkisselið stækkar: Nýr samningur undirritaður

Frá vinstri: Björn Gíslason formaður Fylkis, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur, Pétur Freyr Pétursson framkvæmdastjóri Íþöku fasteigna & Pétur Guðmundsson

Reykjavíkurborg og Íþaka fasteignafélag skrifuðu í dag undir nýjan samning um Fylkisselið í Norðlingaholti. Fylkisselið hýsir í dag aðstöðu fimleikadeildar, karatedeildar og rafíþróttadeildar Fylkis.

Samningurinn kveður meðal annars á um stækkun hússins, sem mun bæta aðstöðu iðkenda, þjálfara og starfsfólks til muna. Þá verður aðstaða fyrir áhorfendur einnig verulega bætt, en hún er í dag takmörkuð.

Um er að ræða mikil gleðitíðindi fyrir starfsemina í Fylkisselinu. Auk fyrrnefndra íþróttadeilda fer þar fram starf Betri Borgara Fylkis, þar sem yfir 200 manns á besta aldri koma saman þrisvar í viku til líkamsræktar.

Framkvæmdir við stækkunina hefjast í sumar og er áætlað að þeim ljúki í lok árs 2027.