,

Fylki spáð efsta sæti í Lengjudeildinni

Nú í hádeginu fór fram opinber fundur Lengjudeildarinnar þar sem farið var yfir komandi tímabil og m.a. spá formanna, þjálfara og fyrirliða liða í Lengjudeild karla var kynnt.

Þar var Fylki spáð 1. sæti í deildinni, sem myndi tryggja liðinu beinan aðgang að Bestu deildinni árið 2027 ásamt deildartitlinum.

Vonandi rætist spáin og framundan er skemmtilegt sumar framundan á Tekk vellinum.

Spáin í heild:

  1. Fylkir
  2. Þróttur
  3. Njarðvík
  4. Afturelding
  5. HK
  6. Vestri
  7. Grindavík
  8. ÍR
  9. Leiknir R.
  10. Grótta
  11. Ægir
  12. Völsungur

Fyrsti leikur liðsins fer fram á föstudaginn þegar nýliðar deildarinnar, Ægir, mæta í heimsókn á Tekk völlinn.