Íþróttafélagið Fylkir er með frábæra leikfimi fyrir betri borgara 65 ára og eldri þar sem fara fram skemmtilegar og góðar æfingar undir leiðsögn þjálfara. Tónlist frá 60-70 og 80 tímabilinu hljómar dàtt à meðan á æfingu stendur. Unnið er með stöðvaþjálfun sem byggð er upp á styrktaræfingum,jafnvægisæfingu, minnisæfingum og svo er einnig aerobik. Eftir hvern tíma er svo slökun og teygjur.
Eftir æfingu er boðið upp á kaffi og með því og spjallað saman
Æfingar fara fram à mánudögum og miðvikudögum kl: 10.00-11.00 og 11.00-12.00.
Bara koma hreyfa sig , hafa gaman og hitta aðra
Æfingar fara fram í Fylkisseli , Norðlingabraut 12.
Skráning á fimleikar@fylkir.is