Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar er víðs fjarri því sem Fylkir vill standa fyrir. Sú hegðun sem þar átti sér stað á ekkert skylt við íþróttir eða bara almennt í lífinu. Félagið mun taka hart á þessu og gera það sem það getur til að álíka hlutir endurtaki sig ekki. Knattspyrnudeildin vill einnig biðja alla þá sem urðu fyrir þessari óásættanlegu hegðun afsökunar.
Það er Fylki mikið kappsmál að hafa alla umgjörð í lagi og að allir telji sig örugga og velkomna á félagssvæði okkar. Einkunnarorð okkar eru Gleði – Virðing – Metnaður. Þau verða höfð að leiðarljósi við meðferð þessa máls. Þessi yfirlýsing er alls ekki það síðasta sem Knattspyrnudeild Fylkis mun aðhafast í þessu máli.
Ragnar Páll Bjarnason
Formaður Knattspyrnudeildar Fylki


