,

Ákall til 110 – Enginn getur allt en allir geta eitthvað.

Nýverið sendi knattspyrnudeild Fylkis valkröfu í heimabanka flestra íbúa í 110 þar sem við óskum eftir styrkjum til að lyfta öllu starfi félagsins áfram á hærra stig og skiptir þar engu hvort um er að ræða barna- og unglingastarfið eða afrekshópana okkar. Við viljum alltaf bjóða upp á metnaðarfullt starf á öllum stigum starfseminnar án þess að þurfa að slaka á kröfum og þurfum samstillt átak Árbæjarins til að gera það.

Þú getur stutt okkur á þessari vegferð með því að greiða valkröfuna í heimabankanum og fá, til viðbótar við miklar þakkir frá félaginu, starfsfólki og iðkendum öllum, jafnháa upphæð í skattaafslátt í uppgjöri næsta árs.

Allir í póstnúmeri 110 ættu að hafa fengið valkröfu í heimabanka sinn en fyrir þau sem fengu ekki slíka kröfu senda en vilja styrkja starf knattspyrnudeildar þá er hægt að ganga frá greiðslu með millifærslu.
kt: 571083-0199
Rn: 0535-26-80360
Með bestu kveðju,
Ragnar Páll, formaður Knattspyrnudeildar Fylkis.
Áfram Fylkir. Alltaf og allsstaðar