Vorönn 2024

S-1

S-1 er lokaður hópur fyrir stráka sem keppa í þrepum íslenska fimleikastigans.

S-1 er einungis ætlaður iðkendum sem hafa verið valdnir í hópinn og eru tilbúnir til keppni.

Tekið er stöðumat á hverri önn og metið hvort iðkendur hæfi sínum hóp eða hvort iðkandi færist í annan hóp.

Mikilvægt er fyrir iðkendur í keppnishópum:

  • Að hafa mikinn áhuga á að keppa
  • Drifkraft til að ná langt í sinni íþrótt.

Nánari upplýsingar

Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands.

Ath. Hámark 12 iðkendur í hverjum hóp ef þjálfari er einn, 18 iðkendur ef þjálfarar eru tveir.

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.

Íslenski fimleikastiginn

Íslenski fimleikastiginn eru þær æfingar og reglur sem iðkendur fara eftir í keppnum. Fimleikastiginn er gefinn út á fjögurra ára fresti. Hjá drengjum er fimleikastiginn er byggður upp á sex þrepum ætluðum til æfinga og keppni í áhaldafimleikum karla. Lægsta þrepið, 6. þrepið eru skylduæfingar ætlaðar til kennslu iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni og eingöngu ætlað til keppni á innanfélags- og vinamótum. Fimm efstu þrepin, þ.e. 5. – 1. þrep eru ætluð til keppni á mótum FSÍ.
Auk þess er kennt sérstakt Fylkisþrep fyrir yngstu iðkendur Fylkis sem keppt er í á Innanfélagsmótum Fylkis.

Ath. Framhaldshópur. Ekki hægt að skrá beint í þennan hóp.

Zoltan