Vorönn 2026

Grunn- og framhaldshópar stráka (S5, S3 og S2)

ATH. Nú fara allar skráningar í gegnum skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Boðið er upp á þjálfun fyrir stráka fædda árið 2015-2020.

S-5 er fyrir stráka fædda 2019-2020 sem eru að byrja í fimleikum í fyrsta sinn eða hafa verið í Fimleikaskólanum.

S-3 er fyrir stráka fædda 2018-2019 sem eru að byrja í fimleikum og stráka sem eru lengra komnir. 

S-2 er fyrir stráka fædda 2015-2017 sem eru að byrja í fimleikum og stráka sem eru lengra komnir. 

Markmið námskeiðsins er að kynna fyrstu grunnæfingar fimleika, æfa samhæfingu, jafnvægi, liðleika og kynnast þeim áhöldum sem kennd eru í áhaldafimleikum, þ.e. gólf, bogahestur, hringir, stökk, tvíslá og svifrá hjá drengjum. Kennt er eftir reglum Íslenska fimleikastigans, sjá nánar hér að neðan.

Kennt er: 2×1 klst á viku

Nánari upplýsingar

Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands.

Námskeið hefst skv. stundaskrá 5. janúar  og lýkur 31. maí

Ath. Hámark 12 iðkendur í hverjum hóp ef þjálfari er einn, 18 iðkendur ef þjálfarar eru tveir.

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.

Íslenski fimleikastiginn

Íslenski fimleikastiginn eru þær æfingar og reglur sem iðkendur fara eftir í keppnum. Fimleikastiginn er gefinn út á fjögurra ára fresti. Hjá drengjum er fimleikastiginn er byggður upp á sex þrepum ætluðum til æfinga og keppni í áhaldafimleikum karla. Lægsta þrepið, 6. þrepið eru skylduæfingar ætlaðar til kennslu iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni og eingöngu ætlað til keppni á innanfélags- og vinamótum. Fimm efstu þrepin, þ.e. 5. – 1. þrep eru ætluð til keppni á mótum FSÍ.
Auk þess er kennt sérstakt Fylkisþrep fyrir yngstu iðkendur Fylkis sem keppt er í á Innanfélagsmótum Fylkis.

S2

  • Mánudagar

    14:30 – 16:00

  • Miðvikudagar

    14:30 – 16:00

  • Fimmtudagar

    14:30 – 16:00

S3

  • Miðvikudagar

    14:30 – 16:00

  • Föstudagar

    15:30 – 16:30

S5

  • Þriðjudagar

    16:30 – 17:30

  • Föstudagar

    16:30 – 17:30

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler. 

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Zoltán

Óðinn