Haustönn 2024
Grunn- og framhaldshópar stráka (S5 og S2)
ATH. Nú fara allar skráningar í gegnum skrifstofu fimleikar@fylkir.is
Boðið er upp á þjálfun fyrir stráka fædda árið 2014-2018.
S-5 er fyrir stráka fædda 2016-2018 sem eru að byrja í fimleikum í fyrsta sinn eða hafa verið í Fimleikaskólanum.
S-2 er fyrir stráka fædda 2014-2015 sem eru að byrja í fimleikum og stráka sem eru lengra komnir.
Markmið námskeiðsins er að kynna fyrstu grunnæfingar fimleika, æfa samhæfingu, jafnvægi, liðleika og kynnast þeim áhöldum sem kennd eru í áhaldafimleikum, þ.e. gólf, bogahestur, hringir, stökk, tvíslá og svifrá hjá drengjum. Kennt er eftir reglum Íslenska fimleikastigans, sjá nánar hér að neðan.
Kennt er: 2×1 klst á viku
Nánari upplýsingar
Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands.
Námskeið hefst skv. stundaskrá 2. september og lýkur 15. desember
Ath. Hámark 12 iðkendur í hverjum hóp ef þjálfari er einn, 18 iðkendur ef þjálfarar eru tveir.
Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)
* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.
* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.
Íslenski fimleikastiginn
Íslenski fimleikastiginn eru þær æfingar og reglur sem iðkendur fara eftir í keppnum. Fimleikastiginn er gefinn út á fjögurra ára fresti. Hjá drengjum er fimleikastiginn er byggður upp á sex þrepum ætluðum til æfinga og keppni í áhaldafimleikum karla. Lægsta þrepið, 6. þrepið eru skylduæfingar ætlaðar til kennslu iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni og eingöngu ætlað til keppni á innanfélags- og vinamótum. Fimm efstu þrepin, þ.e. 5. – 1. þrep eru ætluð til keppni á mótum FSÍ.
Auk þess er kennt sérstakt Fylkisþrep fyrir yngstu iðkendur Fylkis sem keppt er í á Innanfélagsmótum Fylkis.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler.
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is