Karate: Fullorðinsæfingar hefjast 2. Febrúar

Karatedeild Fylkis kynnir nýjung: Fullorðins karate (18+)
Karatedeild Fylkis er að hefja nýjan karatehóp fyrir fullorðna (18+), þar sem áhersla er lögð á hreyfingu við hæfi hvers og eins. Hópurinn er ætlaður bæði byrjendum og lengra komnum, ungum sem eldri, og markmiðið er að bjóða upp á skemmtilegar, fjölbreyttar og krefjandi æfingar.
Fyrsta æfing fer fram mánudaginn 2. febrúar.
Æfingar fara fram í Karatesalnum í Fylkisseli, Norðlingabraut 12 (hægra megin við tjaldið) og verður æft tvisvar í viku:
- Mánudagar kl. 18:00–19:30
- Fimmtudagar kl. 17:30–19:00
Á æfingunum verður meðal annars lögð áhersla á:
- Grunnatriði í karate
- Styrk, liðleika og þol
- Skemmtilega leiki og fjölbreytta hreyfingu
Deildin býður upp á frábært kynningartilboð: Fyrstu tvær vikurnar frítt og síðan við skráningu bætast við tvær vikur til viðbótar frítt og að því loknu er önnin á hálfvirði (20.000 kr.)
Eftir að hafa prófað ýmsar íþróttir get ég með sanni sagt að karate sé ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta íþrótt sem ég hef æft. Æfingarnar taka á öllum líkamanum og ögra heilanum – það er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt.
– Þórey Arna Árnadóttir, iðkandi í fullorðinshópi karatedeildarinnar
Engin krafa er gerð um toppform bara mæta, prófa og hafa gaman.
Nánari upplýsingar veitir Iveta í síma 847-1411, í tölvupósti ivanovaciveta@gmail.com eða hér á Abler.


