Fylkir er fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Íþróttafélagið Fylkir ásamt deildum þess fékk viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ 27.september 2024. Félagið hefur unnið að þessu í nokkur ár og því mikið gleðiefni að fá þetta staðfest. Forsvarmenn félagsins eru sannfærðir um að þessi viðurkenning muni hjálpa félaginu og deildum þess í þeim verkefnum sem framundan eru.
Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaverkefni íþrótta-hreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi. Íþróttafélög og deildir innan félaga geta sótt um viðurkenningu til ÍSÍ að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þegar viðurkenning hefur verið veitt gildir hún í fjögur ár.
Viðurkenningunni fylgja ýmsir kostir. Handhafar hennar hafa samþykkt stefnur og viðbragðsáætlanir í flestum þeim málum er snúa að íþróttastarfi. Fjölbreytt markmið með starfinu liggja fyrir og það eitt og sér eykur líkur á því að allir sem koma að starfinu með einum eða öðrum hætti rói í sömu átt, félaginu til heilla og framfara. Siðareglur liggja fyrir, persónuverndarstefna er klár auk stefna í fræðslu- og forvarnarmálum, jafnréttismálum, umhverfismálum og félagsmálum svo eitthvað sé nefnt. Benda má á að sveitarfélög gera í auknum mæli kröfur til íþróttafélaga um að hafa þessa viðurkenningu frá ÍSÍ.