Viltu gerast bakhjarl knattspyrnudeildar Fylkis?
Knattspyrnudeild Fylkis leggur mikið upp úr því að bjóða upp á fyrsta flokks uppeldis- og íþróttastarf. Mikill metnaður er settur faglegt starf og vera með fyrsta flokks þjálfun í öllum flokkum.
Deildin fór m.a. af stað með gríðarlega metnaðarfullt verkefni síðasta haust með æfingum fyrir börn á leikskólaaldri, stutt af öflugu þjálfarateymi sem hefur sannarlega slegið í gegn. Yfir 140 leikskólakrakkar í hverfinu hafa mætt á æfingar á leikskólatíma, tvisvar til þrisvar sinnum í viku í allan vetur og þannig fengið að kynnast skipulögðu íþróttastarfi í vinsælustu íþrótt í heimi. Okkar markmið er að fylgja þessu verkefni eftir og gera enn betur næsta haust.
Því leitum við til stuðningsaðila í hverfinu til að gerast bakhjarlar þar sem margt smátt gerir eitt stórt. Bakhjarl knattspyrnudeildar Fylkis leggur til 10 þúsund kr. framlag með eingreiðslu í heimabanka (skattalegt hagræði með skattaafslætti) og leggur þar með sitt af mörkum til að tryggja öflugt forvarnarstarf og frábæra umgjörð yngri flokka Fylkis sem styður við einkunnarorð félagsins, gleði, virðing, metnaður.
Valkrafa mun birtast í heimabanka og fyrir þá sem fá ekki slíka kröfu senda en vilja styrkja starf knattspyrnudeildar þá er hægt að ganga frá greiðslu með millifærslu.
kt: 571083-0199
Rn: 535-26-80300


