,

Ísabella Júlía skrifar undir samning við Fylki!

Knattspyrnudeild Fylkis tilkynnir með stolti að Ísabella Júlía Óskarsdóttir hefur skrifað undir samning við Fylki sem gildir út árið 2026.

Við væntum þess að hún eigi eftir að leggja mikið af mörkum til liðsins á komandi tímabili. Ísabella Júlía er markvörður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 95 KSÍ leiki fyrir Völsung, Dalvík og Þór/KA.

Okkur hlakkar mikið til að sjá Ísabellu Júlíu í Fylkisbúningnum á þessu tímabili en þess má geta að hún lék sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar hún kom inná sem varamaður á móti Val í Reykjavíkurmótinu.

Gleði – Virðing – Metnaður