Guðrún Þóra framlengir

Guðrún Þóra framlengir samning sinn við Fylki!
Knattspyrnudeild Fylkis tilkynnir með mikilli gleði að Guðrún Þóra Geirsdóttir hefur framlengt samning sinn við Fylki út keppnistímabilið 2026. Við væntum þess að hún eigi eftir að leggja mikið af mörkum til liðsins á komandi tímabili að vinna til baka sæti okkar í Lengjudeildinni.
Guðrún Þóra er uppalin á Húsavík en kom til félagsins fyrir síðasta tímabil. Hún hefur leikið 92 KSÍ leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 11 mörk.
Gleði – Virðing – Metnaður


