Vorönn 2024

K-2

K-2 er lokaður hópur fyrir stúlkur sem keppa í 3-5. þrepi íslenska fimleikastigans.

Keppnishópar eru í boði fyrir iðkendur sem keppa í þrepum íslenska fimleikastigans á mótum FSÍ.
Keppnishópar eru lokaðir hópar sem eru einungis ætlaðir iðkendum sem hafa verið valdnir í keppnishópa og eru tilbúnir til keppni.

Tekið er stöðumat á hverri önn og metið hvort iðkendur hæfi sínum hóp eða hvort iðkandi færist í annan hóp.

Mikilvægt er fyrir iðkendur í keppnishópum:

  • Að hafa mikinn áhuga á að keppa
  • Drifkraft til að ná langt í sinni íþrótt.

Kennt er eftir reglum Íslenska fimleikastigans, sjá nánar hér að neðan.

Nánari upplýsingar

Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands. 

Ath. Hámark 12 iðkendur í hverjum hóp ef þjálfari er einn, 18 iðkendur ef þjálfarar eru tveir og 25 iðkendur ef þjálfarar eru þrír eða fleiri.

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingartíma.

Íslenski fimleikastiginn

Íslenski fimleikastiginn eru þær æfingar og reglur sem iðkendur fara eftir í keppnum. Fimleikastiginn er gefinn út á fjögurra ára fresti. Hjá stúlkum er fimleikastiginn byggður upp á átta þrepum ætluðum til æfinga og keppni í áhaldafimleikum kvenna. Lægstu þrjú þrepin þ.e. 6. -7. – 8. þrep eru skylduæfingar ætlaðar til kennslu iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni. Eftirfarandi þrep eru eingöngu ætluð til keppni á innanfélags- og vinamótum. Efstu fimm þrepin, þ.e. 5. – 1. þrep eru ætluð til keppni á mótum FSÍ.

Ath. K-2 er lokaður hópur og því ekki hægt að skrá beint í K-2. Greiðsla fer fram í gegnum Sportabler. 

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Karak (István Oláh)

Rebekka Ósk