3.Flokkur kvenna

3.flokkur æfir 4-5 sinnum í viku yfir allt tímabilið. Tímabilið nær frá 15.september til 14.september næsta árs. Æft er ýmist á Fylkisvelli, Egilshöll, ÍR-húsi eða skólum í hverfinu. Yfir vetratímann eru spilaðir æfingaleikir og tekið þátt í Reykjavíkur/Faxaflóamóti. Yfir sumarið er Íslandsmótið í hæstu hæðum og ákveða þjálfarar í samráði við foreldraráð og yfirþjálfara hvort stefnan sé sett á aukaverkefni líkt og æfingaferð eða Reycup. Flokkurinn æfir alla 12 mánuði ársins en þó eru gefin frí í kringum jól, páska og síðustu tvær vikurnar í júlí.

Nánari upplýsingar

Skráning fer fram á heimsíðu félagsins og er þar einnig hægt að finna upplýsingar um æfingagjöldin og greiðslufyrirkomulagið.

Mikilvægt er að klára skráningu strax og iðkandi byrjar þar sem öll samskipti þjálfara við iðkendur fara fram í gegnum skráningarkerfið Sportabler.

Vinsamlegast kynnið ykkur upplýsingar um starf félagsins á heimasíðu þess á undirsíðum fótboltans og félagsins en þar má finna gagnlegar upplýsingar eins og stefnur og verklagsreglur.

Hægt er svo að senda fyrirspurn á netfangið fylkir@fylkir.is.

Æfingatími

  • Mánudagar

    19:00 – 20:30
    Fylkisvöllur (Efri)

  • Þriðjudagar

    18:30 – 20:00
    ÍR-Hús

  • Miðvikudagar

    18:15 – 19:45
    Fylkisvöllur

  • Fimmtudagar

    18:15 – 19:45
    Fylkisvöllur

Jón Steindór Þorsteinsson

Menntun : UEFA A

nonnisteina@gmail.com