Vorönn 2024

G-1

ATH. Nú fara allar skráningar í gegnum skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Boðið er upp á þjálfun fyrir stúlkur fæddar árið 2018 sem eru tilbúnar að stíga sín fyrstu skref í fimleikum.
G-1 er fyrir stúlkur sem eru að byrja í fimleikum í fyrsta sinn eða hafa verið í Fimleikaskólanum.
Foreldrar eru ekki hluti af kennslustund og þurfa iðkendur að vera tilbúin að standa á sínum eigin fótum (Ef börn treysta sér ekki að vera ein er Fimleikaskólinn sem er kenndur á sunnudögum í boði fyrir þennan aldurshóp).
Markmið námskeiðsins er að kynna fyrstu grunnæfingar fimleika, æfa samhæfingu, jafnvægi, liðleika og kynnast þeim áhöldum sem kennd eru í áhaldafimleikum, þ.e. stökk, tvíslá, slá og gólf hjá stúlkum. Kennt er eftir reglum Íslenska fimleikastigans, sjá nánar hér að neðan.

Kennt er 2×1 klst í viku.

Nánari upplýsingar

Verðskrá sjá nánar hér
Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands. 

Námskeið hefst skv. stundaskrá 08. janúar og lýkur 31. maí

Ath. Hámark 12 iðkendur í hverjum hóp ef þjálfari er einn, 18 iðkendur ef þjálfarar eru tveir og 25 iðkendur ef þjálfarar eru þrír eða fleiri.

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.

Íslenski fimleikastiginn

Íslenski fimleikastiginn eru þær æfingar og reglur sem iðkendur fara eftir í keppnum. Fimleikastiginn er gefinn út á fjögurra ára fresti. Hjá stúlkum er fimleikastiginn byggður upp á átta þrepum ætluðum til æfinga og keppni í áhaldafimleikum kvenna. Lægstu þrjú þrepin þ.e. 6. -7. – 8. þrep eru skylduæfingar ætlaðar til kennslu iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni. Eftirfarandi þrep eru eingöngu ætluð til keppni á innanfélags- og vinamótum. Efstu fimm þrepin, þ.e. 5. – 1. þrep eru ætluð til keppni á mótum FSÍ.
Auk þess er kennt sérstakt Fylkisþrep fyrir yngstu iðkendur Fylkis sem keppt er í á Innanfélagsmótum Fylkis.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler. 

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Þjálfari kemur síðar