Haustönn 2024
Parkour B
ATH. Nú fara allar skráningar í gegnum skrifstofu fimleikar@fylkir.is
Parkour B er í boði fyrir 2012-2015
Parkour er ört vaxandi alþjóðleg jaðaríþrótt og byggist á tækni við að komast frá punkti A til punkts B eins líkamlega hratt og hægt er, ásamt því að gera ýmis trix á leiðinni. Til að æfa sig í ýmsum æfingum er gott að æfa parkour inn í fimleikasal til að vera í öruggu umhverfi. Hver og einn iðkandi fer á sínum hraða og gerir það sem hann hefur getu og treystir sér til.
Kennt er 2×1,5 klst í viku.
Nánari upplýsingar
Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands.
Námskeið hefst skv. stundaskrá 2. september og lýkur 15. desember
Ath. Hámark 40 iðkendur í hverjum hóp.
Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)
* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.
* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler.
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is