Valorant

Á æfingum er unnið að því að bæta sig sem Valorant spilara og læra allskonar undirstöðuatriði sem hjálpa okkur að ná árangri í leiknum.

Iðkendur læra meðal annars að vinna sem lið, eiga góð samskipti, setja upp og framkvæma strategíur og bæta ýmis tæknileg atriðið í leiknum hjá sér.

Æft er 2x í viku, 1,5 klst í senn.

Á æfingum hjá Rafíþróttadeild Fylkis er lögð áhersla á jákvæða tölvuleikjaspilun, líkamlega og andlega heilsu og liðsheild. Iðkenndur hita upp og stunda líkamlegar hreyfingu, læra heilbrigða spilunarhætti og vinna saman sem lið.

Nánari upplýsingar

Verð fyrir haustönn er 50.000 kr. 

Æfingar hefjast 6. september og lýkur 17. desember.

Ath. Hámark 10 iðkendur í hóp

Æfingar fara fram á PC tölvum

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Rafíþróttadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (4 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.

Æfingatími

  • Mánudagur

    kl. 19:30-21:00

  • Miðvikudagur

    kl. 19:30-21:00

Þjálfari