Haustönn 2024

Parkour A

ATH. Nú fara allar skráningar í gegnum skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Parkour A er hópur í boði fyrir 2011 og eldri.

Parkour er ört vaxandi alþjóðleg jaðaríþrótt og byggist á tækn­i við að kom­ast frá punkti A til punkts B eins lík­am­lega hratt og hægt er, ásamt því að gera ýmis trix á leiðinni. Til að æfa sig í ýmsum æfingum er gott að æfa parkour inn í fimleikasal til að vera í öruggu umhverfi. Hver og einn iðkandi fer á sínum hraða og gerir það sem hann hefur getu og treystir sér til.

Kennt er 2×2 klst í viku.

Nánari upplýsingar

Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands. 

Námskeið hefst skv. stundaskrá 2. september og lýkur 15. desember

Ath. Hámark 40 iðkendur í hverjum hóp.

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.

Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler. 

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Kristófer Gísli

Bjarki Rafn