Stór dagur í Árbænum ! Nýtt teymi í meistaraflokki kvenna

Viktor Lekve • 18. október 2022
Knattspyrnudeild Fylkis hefur samið við Gunnar Magnús Jónsson sem aðalþjálfara, Sonný Láru Þráinsdóttir aðstoðarþjálfara, Bjarna Þórð Halldórsson markmannsþjálfara, Michael John Kingdon leikgreinanda, Ingvar Guðfinnson styrktarþjálfara og Tinnu Björk Birgisdóttir sjúkraþjálfara.
Gunnar Magnús er Keflvíkingur í húð og hár og hefur stýrt kvennaliði Keflavíkur síðan 2016 auk þess að hafa þjálfað meistaraflokk karla í Keflavík og Njarðvík, kvennalið Grindavíkur og yngri flokka Keflavíkur. Gunnar hefur stjórnað 225 leikjum hjá meistaraflokki kvenna í gegnum tíðina. Reynslumikill þjálfari sem verður gaman að fylgjast með.
Sonný Lára er einn reynslumesti markmaður landsins en hefur hún spilaði 410 leiki fyrir Breiðablik og Fjölni og vann 3 Íslandsmeistaratitla auk 2 bikarmeistaratitla með Breiðablik. Auk þess að hafa verið fastamaður í A landsliðs hópi Íslands. Gaman er að segja frá því að hún skoraði 9 mörk á sínum ferli.
Bjarni Þórður er uppalinn í Fylki og hefur spilað 336 leiki með Fylki, Víking, Stjörnunni og Aftureldingu auk þess að hafa spilað 8 landsleiki með U21 landsliði Íslands.
Michael John er uppalin í Fylki og hefur þjálfað yngri flokka Fylkis síðustu ár. Mike sá um leikgreiningar fyrir meistaraflokk karla síðasta sumar auk þess sem, hann sér um leikgreiningar fyrir U19 ára landslið Íslands.
Ingvar Guðfinnson hefur verið hjá Fylki síðan 2015 og séð um styrktarþjálfun. Ingvar hefur komið víða við á ferlinum en m.a. var Ingvar alþjóðlegur aðstoðardómari og flaggaði í stórum leikjum meðal annars hjá Liverpool og Enska landsliðinu. Ingvar var einnig leikmaður en hann spilaði með Tindastól.
Tinna Björk er menntaður sjúkraþjálfari, uppalin í Kópavoginum og spilaði 107 KSí leiki með Breiðablik, Fram, Aftureldingu og var hluti af Fylkisliðinu sem sigraði Lengjudeildina 2017.
Samningur þeirra er til tveggja ára og eru miklar vonir bundar við samstarfið
Knattspyrnudeild Fylkis fagnar þessum ráðningum og erum við öll gríðarlega spennt fyrir komandi tímabili.
The post Stór dagur í Árbænum ! Nýtt teymi í meistaraflokki kvenna appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
30. október 2026
Kristófer Sigurgeirsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla síðastliðin tvö tímabil hefur nú kvatt félagið. Kristófer var ráðinn til Fylkis í nóvember 2024 samhliða ráðningu Árna Freys, sem tók þá við sem aðalþjálfari liðsins. Kristófer kom inn sem aðstoðarþjálfari en tók jafnframt að sér mikilvæg verkefni á sviði afreksþjálfunar og þjálfunar 2. flokks karla. Þá lék hann lykilhlutverk í aðlögun ungra leikmanna sem voru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki karla. 🗣️ Skilaboð frá Kristófer Ég vil nýta tækifærið og þakka leikmönnum, stjórn, ráðum, starfsfólki og stuðningsfólki Fylkis kærlega fyrir þann tíma sem ég hef átt hjá félaginu. Tíminn hjá Fylki hefur verið einstaklega ánægjulegur og lærdómsríkur og ég er afar þakklátur fyrir allar þær góðu stundir sem ég hef upplifað á þessum tíma. Ég óska félaginu, leikmönnum og öllum þeim sem starfa innan þess alls hins besta í framtíðinni. Á þeim tveimur árum sem Kristófer starfaði hjá Fylki vann hann með þremur aðalþjálfurum, fyrst Árna Frey, síðar Arnari Grétarssyni og síðast Heimi Guðjónssyni. Undir stjórn Heimis og Kristófers varð karlalið Fylkis Lengjubikarmeistari á nýliðnu tímabili og náði jafnframt eftirtektum árangri í sumar með liðið, þar sem liðið var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í Bestu deildinni og komst í úrslitaleik Mjólkurbikars karla. Við þökkum Kristófer innilega fyrir störf hans og framlag til félagsins undanfarin tvö ár og óskum honum alls hins besta í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
30. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar fór fram 29.október síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn deildarinnar sem er óbreytt frá fyrra ári og Ragnar Páll Bjarnason áfram formaður knattspyrnudeildar. Skipað var í þrjú ráð deildarinnar ásamt því að staðfesta stjórn Indriðasjóðsins og skipun uppstillingarnefndar. Stjórn knattspyrnudeildar Ragnar Páll Bjarnason, Formaður Edda Sif Sigurðardóttir Davíð Gunnarsson Haraldur Úlfarsson Hjördís Jóhannesdóttir Barna- og unglingaráð Ólafur Thorarensen, Formaður Ágústa Ósk Einarsdóttir Eiður Kristjánsson Meistaraflokksráð kvenna Kristófer Númi Hlynsson, Formaður Atli Már Agnarsson Ámundi Halldórsson Jónína Guðrún Reynisdóttir Júlíus Örn Ásbjörnsson Kamilla Rún Ólafsdóttir Sigurður Magnússon Steinunn Jónsdóttir Meistaraflokksráð karla Jón Þór Júlíusson, Formaður Árni Leó Þórðarson Sigfús Örn Guðmundsson Valur Ragnarsson Þorsteinn Lár Ragnarsson Stjórn Minningarsjóðs Indriða Einarssonar Loftur Ólafsson, Formaður Finnur Kolbeinsson Kristinn Tómasson Steinunn Jónsdóttir Þór Hauksson Uppstillingarnefnd Guðrún Ósk Jakobsdóttir Halldór Frímannsson Rúnar Geirmundsson

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
28. október 2026
Knattspyrnudeild Fylkis og Heimir Guðjónsson hafa komist af samkomulagi um að Heimir láti af störfum sem aðalþjálfari meistaraflokks karla frá og með deginum í dag. Í lok október 2025 tilkynntum við um ráðningu Heimis sem þjálfara Fylkis til næstu tveggja ára. Samningurinn milli aðila gerði ekki ráð fyrir heimild til uppsagnar. Við lítum stolt um öxl þegar við horfum til tímabilsins 2026 þó svo að megin markmiðið að tryggja okkur réttinn til að spila í Bestu deild 2027 hafi ekki náðst. Fylkir vann Lengjubikarinn sl. vor, við lékum til undanúrslita í Mjólkurbikarkeppni KSÍ og heilt yfir voru miklar framfarir á liðinu frá fyrra ári. Stuðningurinn við Fylki í úrslitakeppninni í september var framúrskarandi og þar eiga stuðningsmenn Fylkis mikið hrós skilið. Í fjölmiðlum og hlaðvörpum hefur nafn Heimis ítrekað verið tengt við önnur félög á undanförnum mánuðum. Eftir rót síðustu vikna er það mat stjórnar Knattspyrnudeildar Fylkis að hagsmunum Fylkis sé best þjónað með slitum á samstarfinu við Heimi Guðjónsson. Við þökkum Heimi fyrir hans framlag til Fylkis og óskum honum velfarnaðar. Stjórn deildarinnar og meistaraflokksráð er staðráðið að byggja á þeim góða grunni sem er til staðar hjá Fylki. Leit að nýjum aðalþjálfara karlaliðs Fylkis er hafin. GLEÐI VIRÐING METNAÐUR - Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar. Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Breyting á reglugerð knattspyrnudeildar, sjá nánar hér - Önnur mál










