Tryggðu þér miða á Herrakvöld Fylkis

Hörður • 4. janúar 2023
Herrakvöld Fylkis verður haldið föstudaginn 20. janúar 2023 í Fylkishöll.
Veislustjórn verður í fumlausum höndum Gísla Einarssonar fjölmiðlamanns.
Ræðumaður kvöldsins verður Víðir Reynisson. Jóhann Alfreð og Jakob Birgisson sjá til þess að allir skemmti sér vel.
Húsið opnar kl. 18:30.
Glæsilegar veitingar; Þorramatur og Lambasteik
Happdrætti og málverkauppboð verður á sínum stað.
Fjölmennum á skemmtilegt og glæsilegt Herrakvöld með góðum vinum og Fylkismönnum.
Miðasala fer fram á tix.is
Verð aðeins kr. 11.900.
The post Tryggðu þér miða á Herrakvöld Fylkis appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
27. nóvember 2026
Arnór Breki Ásþórsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis og verður áfram í herbúðum félagsins út keppnistímabilið 2028. Arnór Breki var varafyrirliði Fylkis á síðasta tímabili og lék alls 39 leiki með liðinu í öllum keppnum. Hann hefur á ferli sínum leikið 349 leiki í meistaraflokki, þar af 150 fyrir Fylki. Fyrir þann áfanga var hann sérstaklega heiðraður á lokahófi deildarinnar á dögunum. Arnór Breki er 28 ára bakvörður sem gekk til liðs við Fylki árið 2022 eftir góðan feril með Fjölni og Aftureldingu, þá á hann einnig að baki leiki með yngri landsliðum Íslands. Hann hefur með reynslu sinni og framlagi verið mjög mikilvægur leikmaður í liði Fylkis síðustu ár. Það eru virkilega ánægjuleg tíðindi að tryggja áframhaldandi krafta Arnórs Breka og hlökkum við til að sjá hann leiða liðið áfram í appelsínugulu treyjunni! 🧡

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
27. nóvember 2026
Jóel Baldursson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Fylkis. Jóel er 19 ára gamall og uppalinn Fylkismaður sem hefur verið að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Hann lék alls 11 leiki í deildar- og bikarkeppnum með liðinu á síðasta tímabili og á nú þegar að baki 22 leiki fyrir meistaraflokk félagsins. Jóel er öflugur og útsjónarsamur leikmaður sem við hjá Fylki höfum miklar væntingar til. Við vonumst til að sjá hann vaxa áfram og taka enn stærra hlutverk í liðinu á næstu árum. Það er virkilega ánægjulegt að hann hafi ákveðið að halda tryggð við uppeldisfélagið sitt og taka þátt í þeirri vegferð sem fram undan er, þar sem markmiðið er að koma Fylki aftur í deild þeirra bestu segir Jón Þór Júlíusson, formaður meistaraflokksráðs karla. Það er mikið ánægjuefni að sjá uppalda leikmenn halda áfram að taka framförum í appelsínugulu treyjunni og við hlökkum til að fylgjast með Jóel á næstu árum! 🧡

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
24. nóvember 2026
Júlía Huld Birkisdóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis og verður áfram í herbúðum félagsins út keppnistímabilið 2028. Júlía er uppalin hjá Fylki og var hún á dögunum verðlaunuð á lokahófi meistaraflokka karla og kvenna fyrir þann áfanga að hafa leikið upp alla flokka félagsins. Júlía, sem er fædd árið 2009, steig sín fyrstu skref með meistaraflokki á síðasta tímabili og stóð sig afar vel í markinu. Hún hélt hreinu í átta af þeim 16 leikjum sem hún lék á tímabilinu. Það er mikið ánægjuefni að sjá uppalda leikmenn taka skrefin upp í meistaraflokk og Júlía er sannarlega spennandi leikmaður til framtíðar. Við óskum Júlíu til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að sjá hana halda áfram að standa sig vel milli stanganna! 🧡

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
23. nóvember 2026
Magnús Daði Ottesen, framherji Fylkis, heldur í dag í annað sinn til æfinga hjá þýska stórliðinu Bayern München. Þessi 15 ára gamli leikmaður var á dögunum valinn efnilegasti leikmaður Fylkis af liðsfélögum sínum í meistaraflokki í lokahófi deildarinnar, en hann verður 16 ára þann 30. nóvember næstkomandi. Á nýliðnu tímabili lék Magnús Daði alls 9 leiki með 3. og 2. flokki Fylkis þar sem hann skoraði alls 10 mörk. Þá lék hann 6 landsleiki með U16 og U17 landsliðunum og skoraði 6 mörk. Magnús lék svo alls 21 leik í öllum keppnum með meistaraflokki Fylkis í sumar og skoraði í þeim fimm mörk, þar sem liðið endaði í þriðja sæti í Lengjudeildinni, spilaði til úrslita á Laugardalsvelli um laust sæti í efstu deild, komst í undanúrslitaleik Mjólkurbikarsins og vann A-deild Lengjubikarsins í vor. Alls eru þetta 36 leikir og 21 mark í sumar hjá framherjanum efnilega. Magnús Daði verður í viku við æfingar hjá þýsku meisturunum sem hafa haldið áfram að fylgast vel með þróun hans og þroska sem leikmanns eftir að hann fór þangað á reynslu í fyrra. Það þarf varla að taka það fram að þetta er ótrúlegt tækifæri fyrir Magnús Daða og við í Fylki erum verulega stolt af okkar manni og óskum honum góðs gengis á æfingunum sem fram undan eru í Þýskalandi.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
18. nóvember 2026
Ísabella Júlía Óskarsdóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis og verður áfram í herbúðum félagsins út keppnistímabilið 2028 🧡 Ísabella er 21 árs markvörður sem gekk til liðs við Fylki fyrir keppnistímabilið 2026. Hún lék alls níu leiki á milli stanganna á nýliðnu tímabili og átti sinn þátt í því að tryggja liðinu sæti í Lengjudeildinni á næsta ári. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ísabella þegar leikið 103 meistaraflokksleiki á ferli sínum. Það er virkilega ánægjulegt fyrir félagið að tryggja áframhaldandi krafta Ísabellu og bindum við miklar vonir við að hún muni leika mikilvægt hlutverk í verkefnum liðsins á komandi tímabilum. Við óskum Ísabellu til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til samstarfsins áfram!

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
17. nóvember 2026
Íþróttafélagið Fylkir vill kanna hvernig iðkendur og foreldrar upplifa þjónustu félagsins. VIð hvetjum þig til að láta skoðanir þínar í ljós (tekur um 4 mín). https://form.typeform.com/to/A982Tri2 Niðurstöðurnar verða eingöngu notaðar til að meta þjónustuna. Könnunin er nafnlaus, nema ef þú vilt skilja eftir netfang til að fá frekari upplýsingar. Trúnaði er heitið. Þú getur hætt við eða sleppt spurningum ef þú vilt. Fylgt er persónuverndarstefnu Fylkis. Yngri en 18 ára fá ekki sérstakt boð um könnunina en hún er sýnileg á miðlum okkar og við hvetjum foreldra til að hjálpa börnum sínum, iðkendum, að taka þátt. Ef þú hefur einhverjar spurningar um könnunina hikaðu ekki við að senda póst á fylkir@fylkir.is . Fylkiskveðjur, Formenn deilda Fylkis

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
15. nóvember 2026
Aron Snær Guðbjörnsson hefur skrifað undir nýjan samning við Fylki til næstu tveggja ára eða út keppnistímabilið 2028. Aron lék stórt hlutverk í baráttuglöðu liði Fylkis í sumar sem var hársbreidd frá því að komast upp í Bestu deildina sem og í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Hann lék 20 leiki í sumar og skoraði tvö mörk og lét almennt vel til sín taka í þeim leikjum sem hann spilaði. 🗣️ Jón Þór, formaður meistaraflokksráð karla Árbærinn hefur tekið enn meira ástfóstri við Aron Snæ eftir sumarið og hann er í miklum metum hjá stuðningsmönnum sem baráttuglaður leikmaður með frábæra útgeislun á vellinum. Hann er með kraftmikinn leikstíl sem stuðningsmennirnir elska. Við erum gríðarlega ánægð að sjá Aron áfram í appelsínugulu og hlökkum til að sjá hann á vellinum sem fyrst aftur með liðinu. Við hlökkum til að fylgjast með áframhaldinu hjá Aroni í appelsínugulu treyjunni og sjá hann halda áfram að leggja sitt af mörkum til liðsins á næstu 2 tímabilum.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
10. nóvember 2026
Knattspyrnudeild Fylkis hefur gengið frá ráðningu Arons Baldvins Þórðarsonar sem nýs aðalþjálfara meistaraflokks karla. Aron hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið og tekur þegar við starfinu. Aron er uppalinn Fylkismaður og þekkir því félagið vel. Hann er 31 árs gamall og lék upp alla yngri flokka félagsins áður en hann lék með meistaraflokki árið 2014. Síðasta tímabil sitt sem leikmaður lék hann með Elliða, venslaliði Fylkis, árið 2017. 🗣️ Aron Baldvin, við undirskrift: Þetta er bara draumur að rætast fyrir mig. Ég er náttúrlega mikill Fylkismaður og hef verið það alla tíð. Ég var ungur strákur á Fylkispöllunum í stuðningsmannasveit Kidda Tomm og það hefur alltaf verið sérstök tenging hjá mér við félagið. Að fá núna tækifæri til að þjálfa uppeldisfélagið sitt er bara mikil forréttindi og mikið stolt. Ég veit hvað Fylkir skiptir mig miklu máli og það verður lagt allt í sölurnar fyrir félagið. Ég hlakka ótrúlega mikið til þess að byrja, Þrátt fyrir ungan aldur hefur Aron byggt upp öflugan þjálfaraferil og skipað sér sess sem einn af efnilegri þjálfurum landsins. Hann hefur starfað hjá Víkingi frá árinu 2019 og verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokks frá árinu 2022 undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Árið 2024 tók hann við starfi aðstoðarþjálfara liðsins þegar Sölvi Geir Ottesen tók við sem aðalþjálfari. Ráðningin markar nýjan kafla í þjálfaraferli Arons en þetta er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari meistaraflokks. Knattspyrnudeild Fylkis bindur miklar vonir við ráðningu Arons og hlakkar til samstarfsins. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá uppalinn Fylkismann aftur heim í Árbæinn og taka saman næstu skref í uppbyggingu meistaraflokks karla. Velkominn heim, Aron! 🧡🖤



