Félagsgjald sent á félagsmenn
Félagsgjald íþróttafélagsins Fylkis að upphæð 3.000 kr. hefur verið sent út á skráða félagsmenn. Við viljum þakka félagsmönnum fyrir stuðningin á liðnum árum og vonandi eigum við samleið áfram. Stuðningurinn hefur styrkt stöðu félagsins og gert okkur betur kleift að halda úti því góða starfi sem íþróttafélagið býður upp á í dag en innan íþróttafélagsins Fylkis stunda á annað þúsund barna og fullorðinna íþróttaiðkun í fimm deildum. Þau sem hafa ekki fengið sent félagsgjaldið og hafa áhuga á að gerast félagsmenn í Fylki geta sent tölvupóst á fylkir@fylkir.is.
Ef þú telur að þetta eigi ekki erindi til þín þá biðjumst við afsökunar á óþægindunum og biðjum þig um að senda okkur tölvupóst á fylkir@fylkir.is og við fellum seðilinn niður.
Hörður Guðjónsson
Framkvæmdarstjóri íþróttafélagsins Fylkis