Fortnite Yngri – Hópur B

Á æfingum er unnið að því að bæta sig sem Fortnite spilara og læra allskonar undirstöðuatriði sem hjálpa okkur að ná árangri í leiknum.

Iðkendur læra meðal annars að vinna sem lið, eiga góð samskipti, setja upp og framkvæma strategíur og bæta ýmis tæknileg atriðið í leiknum hjá sér.

Æft er 2x í viku, 1,5 klst í senn.

Á æfingum hjá Rafíþróttadeild Fylkis er lögð áhersla á jákvæða tölvuleikjaspilun, líkamlega og andlega heilsu og liðsheild. Iðkenndur hita upp og stunda líkamlegar hreyfingu, læra heilbrigða spilunarhætti og vinna saman sem lið.

Nánari upplýsingar

Verð fyrir haustönn er 50.000 kr. 

Æfingar hefjast 6. september og lýkur 17. desember.

Ath. Hámark 10 iðkendur í hóp

Æft er á PC tölvum en hægt er að spila með playstation stýripinna og skrá sig inn í gegnum playstation aðganginn sinn.

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Rafíþróttadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (4 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.

***Fortnite æfingar hjá 8 – 10 ára er skipt upp í hópa A og B vegna takmarkaðs pláss hjá okkur og fara æfingarnar fram á mismunandi tímum. Hér er ekki um að ræða skiptingu eftir getu iðkenda.***

Æfingatími

  • Föstudagur

    kl. 15:00-16:30

  • Laugardagur

    kl. 10:30-12:00

Matthías