Frábær árangur á Norðurlandamóti

Viktor Lekve • 17. apríl 2024
Um helgina var NM í karate haldið á Íslandi.
Landslið Íslands skellti í stóran hóp og þar á meðal voru Fylkisfólkið Ólafur Engilbert Árnason, Samuel Josh M. Ramos, Ísold Klara Felixdóttir Nökkvi Snær Kristjánsson, Karen Thuy Duong Vu, Guðmundur Týr Haraldsson og Filip Leon Kristófersson.
Sammi sigraði sinn flokk og er það í fyrsta sinn síðan 1989 þar sem Ísland á gull í kumite senior!
Karen átti glæsilegar viðureignir og fékk 2 sæti í junior
Óli átti mjög góða bardaga eins og svo oft áður og fékk brons í sínum senior flokki
Ísold endaði með bronsið í sínum senior flokki
Filip fékk brons í sínum cadet flokki og svo silfur í mixed liðakeppni með Prins, Eðvarð, Emblu og Emilý
Nökkvi og Gummi stóðu fast á sínu í sínum bardögum. Nökkvi steig aftur inn á mottuna eftir að hafa ekki keppt í um 2 ár!
Við erum svo stolt af þessum og öllum sem kepptu með landsliðinu í þessu verkefni.
Til hamingju öll!
The post Frábær árangur á Norðurlandamóti appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar. Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Önnur mál

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […]
The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […]
The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.








