Vorönn 2024

S-2

S-2 er framhaldshópur fyrir stráka.

Markmið námskeiðsins er að kynna áframhaldandi æfingar í fimleikum, æfa samhæfingu, jafnvægi, liðleika og kynnast betur þeim áhöldum sem kennd eru í áhaldafimleikum karla, þ.e. gólf, bogahestur, hringir, stökk, tvíslá og svifrá hjá drengjum. Kennt er eftir reglum Íslenska fimleikastigans, sjá nánar hér að neðan.

Tekið er stöðumat á hverri önn og metið hvort iðkendur hæfi sínum hóp eða hvort iðkandi færist í annan hóp.

Kennt er 2×1,5 klst á viku.

Nánari upplýsingar

Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands. 

Námskeið hefst skv. stundaskrá 8. janúar og lýkur 31. maí

Ath. Hámark 12 iðkendur í hverjum hóp ef þjálfari er einn, 18 iðkendur ef þjálfarar eru tveir.

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.

Íslenski fimleikastiginn

Íslenski fimleikastiginn eru þær æfingar og reglur sem iðkendur fara eftir í keppnum. Fimleikastiginn er gefinn út á fjögurra ára fresti. Hjá drengjum er fimleikastiginn er byggður upp á sex þrepum ætluðum til æfinga og keppni í áhaldafimleikum karla. Lægsta þrepið, 6. þrepið eru skylduæfingar ætlaðar til kennslu iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni og eingöngu ætlað til keppni á innanfélags- og vinamótum. Fimm efstu þrepin, þ.e. 5. – 1. þrep eru ætluð til keppni á mótum FSÍ.
Auk þess er kennt sérstakt Fylkisþrep fyrir yngstu iðkendur Fylkis sem keppt er í á Innanfélagsmótum Fylkis.

Ath. S-2 er lokaður hópur og því ekki hægt að skrá beint í S-2. Greiðsla fer fram í gegnum Sportabler. 

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Zoltan