Vorönn 2024

F-3

F-3 er framhaldshópur fyrir iðkendur sem hafa lokið einu ári í grunnhópMarkmið námskeiðsins er að kynna áframhaldandi æfingar, æfa samhæfingu, jafnvægi, liðleika.

Iðkendum er skipt í hópa í byrjun annar. Mikilvægt er að skipta iðkendum í hópa eftir getustigi, til þess að hver og einn iðkandi fái sem bestu mögulega þjálfun og líðan. Erfitt getur reynst fyrir þjálfara að vera með iðkendur á mismunandi reiki.
Ef iðkendur vilja vera saman í hóp þá er eingöngu hægt að færa þann iðkanda sem er lengra kominn niður um hóp.

Kennt er eftir reglum Íslenska fimleikastigans, sjá nánar hér að neðan.

Kennt er 3 klst á viku

Nánari upplýsingar

Verðskrá sjá nánar hér
Innifalið í æfingagjöldum er þjónustugjald sem greiðist til Fimleikasambands Íslands. 

Námskeið hefst skv. stundaskrá 8. janúar og lýkur 31. maí

Ath. Hámark 12 iðkendur í hverjum hóp ef þjálfari er einn, 18 iðkendur ef þjálfarar eru tveir og 25 iðkendur ef þjálfarar eru þrír eða fleiri.

Kennsla fer fram í Fylkissel (Norðlingabraut 12, 110 Reykjavík)

* Fimleikadeild Fylkis áskilur sér rétt til að fella niður/sameina hópa ef lágmarksfjöldi (8 iðkendur) næst ekki.

* Birt með fyrirvara um breytingar á æfingatíma.

Íslenski fimleikastiginn

Íslenski fimleikastiginn eru þær æfingar og reglur sem iðkendur fara eftir í keppnum. Fimleikastiginn er gefinn út á fjögurra ára fresti. Hjá stúlkum er fimleikastiginn byggður upp á átta þrepum ætluðum til æfinga og keppni í áhaldafimleikum kvenna. Lægstu þrjú þrepin þ.e. 6. -7. – 8. þrep eru skylduæfingar ætlaðar til kennslu iðkenda sem eru að taka sín fyrstu skref í greininni. Eftirfarandi þrep eru eingöngu ætluð til keppni á innanfélags- og vinamótum. Efstu fimm þrepin, þ.e. 5. – 1. þrep eru ætluð til keppni á mótum FSÍ.
Auk þess er kennt sérstakt Fylkisþrep fyrir yngstu iðkendur Fylkis sem keppt er í á Innanfélagsmótum Fylkis.

Ath. F-3 er lokaður hópur og því ekki hægt að skrá beint í F-3. Greiðsla fer fram í gegnum Sportabler. 

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við skrifstofu fimleikar@fylkir.is

Berglind Magnúsdóttir